Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 11. september 2026
Þessi persónuverndarstefna gildir um sleik.is og tengdar síður sem tilheyra þjónustunni
(þar á meðal leiki, stigatöflur, stig, verslunina, Sleikcraft leikjaþjóna og auglýsingar).
Margir leikir virka alfarið í vafranum án aðgangs; aðrir krefjast aðgangs til að vista framvindu,
safna stigum eða spila við aðra.
1. Inngangur
Sleik.is („við“, „okkur“, „okkar“) tekur persónuvernd og öryggi alvarlega. Þessi stefna útskýrir hvaða upplýsingum
við söfnum, hvers vegna, hvernig við notum þær og hvaða réttindi þú átt samkvæmt gildandi persónuverndarlöggjöf
(þar á meðal GDPR og íslenskum persónuverndarlögum).
2. Ábyrgðaraðili og samskipti
Ábyrgðaraðili fyrir sleik.is er rekstraraðili vefsins.
3. Hvaða upplýsingum við söfnum
Eftir því hvaða hluta vefsins þú notar getum við safnað:
-
Aðgangs- og prófílupplýsingum:
notandaauðkenni, notandanafn, innskráningarleið, prófílmynd, tungumálastilling og netfang (þegar það liggur fyrir).
Innskráning fer eingöngu fram með Sleik ID, okkar eigin innskráningarþjónustu. Eldri aðgangar
(netfang/lykilorð, Google eða SMS/sími) tengjast sjálfkrafa við Sleik ID við fyrstu innskráningu þegar staðfest
netfang stemmir. Stóran hluta vefsins, þar á meðal marga einleiki, má nota án innskráningar; þá stofnum við engan
aðgang og vistum enga leikjastöðu.
-
Leikja- og samfélagsgögnum:
stigum, stigatöflum, tölfræði, eftirlætisleikjum, stöðu í fjölspilunarleikjum og áskorunum, og efni frá notendum
svo sem spjallskilaboðum þar sem spjall er í boði.
-
Stigum, kaupum og hlutum:
stigastöðu þinni og færsluskrá yfir öll stig sem þú vinnur þér inn, eyðir eða leggur undir — þar á meðal stig sem
lögð eru undir í leikjum eins og spilakössum, rúllettu, plinko og blackjack, og stig sem lögð eru undir á spáviðburði — ásamt kaupum í versluninni og hvaða
útlitshluti þú átt og notar. Stig eru sýndargjaldmiðill innan vefsins og hafa ekkert peningalegt verðgildi.
-
Sleikcraft:
ef þú tengir Sleikcraft-persónu (Luanti) við aðganginn þinn geymum við notandanafnið í leiknum og tengidagsetningu,
og leikjaþjónarnir halda utan um spjall og virkni leikmanna.
-
Skilaboðum, ábendingum og fyrirspurnum:
ef þú hefur samband söfnum við þeim upplýsingum sem þú gefur upp (t.d. nafni, netfangi, tegund erindis, texta
og valfrjálsum viðhengjum), ásamt IP-tölu og upplýsingum um vafra.
-
Auglýsingagögnum:
þegar auglýsing birtist þér skráum við birtingu — hvaða auglýsing og herferð, slóð síðunnar, grófa tækjagerð
(sími eða tölva) og annaðhvort notandaauðkenni þitt eða setuauðkenni. Þetta er notað til að telja birtingar,
takmarka endurtekningar og mæla herferðir. Við byggjum ekki upp auglýsingaprófíla og fylgjumst ekki með þér á öðrum vefsvæðum.
-
Rekstrar- og tæknigögnum:
IP-tölu, upplýsingum um vafra, tímastimplum, villuskrám og rekstrarloggum. Hjá innskráðum notendum nær þetta til
viðveru (hvort þú ert á netinu) og hversu lengi þú dvelur á síðum, sem er notað vegna áreiðanleika, misnotkunarvarna og villuleitar.
4. Hvernig við notum upplýsingarnar
Við notum upplýsingar til að:
- Reka og viðhalda þjónustunni (leikjum, stillingum, stigatöflum)
- Halda utan um aðganga og auðkenningu
- Gera fjölspilun, stigatöflur, áskoranir og spjall möguleg
- Reka stigakerfið, verslunina og útlitshluti og halda stigastöðu réttri og sanngjarnri
- Velja, takmarka og mæla auglýsingar sem birtast á vefnum
- Tengja og reka Sleikcraft leikjaaðganga
- Svara fyrirspurnum, ábendingum og villutilkynningum
- Koma í veg fyrir svik, svindl, misnotkun og öryggisatvik
- Greina og bæta upplifun og afköst vefsins (yfirleitt með samanteknum gögnum)
5. Heimildir til vinnslu (GDPR)
Við vinnum persónuupplýsingar á grundvelli einnar eða fleiri af eftirfarandi heimildum:
- Samningur: þegar vinnsla er nauðsynleg til að veita þjónustu sem þú biður um (t.d. aðgangur, vistun framvindu, kaup í verslun).
- Lögmætir hagsmunir: til að tryggja öryggi þjónustunnar, koma í veg fyrir svindl og misnotkun, birta og takmarka okkar eigin auglýsingar og bæta áreiðanleika og afköst.
- Samþykki: þar sem þess er krafist.
- Lagaskylda: þar sem okkur ber að fara að lögum.
6. Þjónustuaðilar og þriðju aðilar
Grunngögn um aðganga og leiki eru geymd í PostgreSQL á okkar eigin innviðum.
Að auki notum við eftirfarandi þjónustuaðila þar sem við á:
- Sleik ID (sso.sleik.is): okkar eigin innskráningarþjónusta, sem sér um nýskráningu, innskráningu, lykilorð og lykla (passkeys)
- Firebase Authentication (Google): ekki lengur notað til innskráningar. Það er eingöngu eftir til að loka eldri Firebase-lotum í vafranum þínum.
- Atlassian Jira: erindi úr sambandsforminu og viðhengi þeirra eru skráð sem þjónustubeiðnir
- Google Maps JavaScript API: kortabirting í staðsetningarleiknum Staðasleik
- Cloudflare: öryggissía, DDoS/WAF vörn, edge-afhending og Cloudflare Web Analytics (umferðarmæling án vefkaka)
- PostHog (EU Cloud): notkunargreining á sleik.is og shop.sleik.is. Gögnin eru hýst í Evrópusambandinu. Beiðnir fara í gegnum okkar eigið lén (
/ingest) og eru áframsendar til PostHog ásamt IP-tölu, vafraupplýsingum og atburðum um notkun (t.d. síðuflettingar, leikjaúrslit og pantanir). Við notum ekki upptökur af skjá (session replay). Að auki eru rekstrarlogg þjónsins (villuskilaboð og greiningarupplýsingar úr bakendanum) send til PostHog. Þau geta innihaldið notandaauðkenni þitt (uid) þegar villa eða atburður tengist innskráðum notanda. PostHog geymir logg í 14 daga.
- Kling (Journey ehf.): greiðsluþjónusta fyrir vefverslun og framlög, sbr. 13. kafla
Auglýsingar eru á eigin vegum. Eins og er birtast engar auglýsingar á sleik.is og
engin auglýsingagögn eru skráð. Séu auglýsingar teknar upp aftur verða þær birtar af okkar eigin
auglýsingakerfi á innviðum sleik.is. Við notum ekkert utanaðkomandi auglýsinganet og ekkert auglýsinganet fær gögn um þig frá okkur.
Google og aðrir þjónustuaðilar kunna að vinna gögn innan EES og/eða á öðrum stöðum eftir uppsetningu og rekstri þjónustunnar.
Persónuverndarstefna Google gildir einnig:
https://policies.google.com/privacy
7. Vefkökur og staðbundin geymsla
Við notum vefkökur („cookies“) og sambærilega tækni eftir þörfum fyrir:
- Nauðsynlega virkni: undirrituðu innskráningarkökuna
sleik_session og skammlífar innskráningarkökur (sso_oidc, sso_link_mode, sso_action_mode)
- Stillingar:
sleik_language
- Boðsleiðir og tilboð:
sleik_referral og sleik_bonus, sem muna boðshlekk eða stakan bónus þar til hann er færður á aðganginn þinn
- Vefverslun:
sleik_cart, sem tengir körfuna þína við þig áður en þú skráir þig inn
- Notkunargreining: vefkaka frá PostHog (
ph_…_posthog) sem gefur vafranum þínum auðkenni svo hægt sé að telja heimsóknir. Hún er sett á .sleik.is svo sami gestur teljist einu sinni þótt hann fari milli sleik.is og shop.sleik.is. Hún fylgir þér ekki á önnur vefsvæði.
- localStorage/sessionStorage: staðbundnar stillingar og tímabundin leikjastaða í vafranum þínum
- Þriðju aðila virkni: Firebase og Google Maps geta notað sínar eigin vefkökur þar sem sú virkni er í notkun
Við notum hvorki Google Analytics né vefkökur til auglýsinga eða eftirfylgni milli vefsvæða, og engin
gögn eru seld eða afhent auglýsendum. Til umferðarmælingar notum við Cloudflare Web Analytics
(án vefkaka) og PostHog á evrópskum netþjónum, sem notar vefkökuna hér að ofan. Sértu skráð(ur) inn
eru atburðir tengdir aðgangsauðkenni þínu (uid); annars er ekki búinn til persónuprófíll. Þú getur slökkt á
greiningu með „Do Not Track“ stillingu vafrans, sem við virðum, eða með því að loka fyrir vefkökur.
Að auki höldum við utan um rekstrarlogg eins og lýst er hér að ofan.
Þú getur slökkt á vefkökum í vafranum þínum, en þá virkar innskráning og ýmis önnur virkni ekki.
8. Birting og deiling upplýsinga
Við seljum ekki persónuupplýsingar og deilum þeim ekki í markaðssetningarskyni. Upplýsingum er aðeins deilt eða þær birtar:
-
Með öðrum notendum:
notandanafn þitt, prófílmynd, stig og tölfræði geta birst í leikjum, áskorunum, spjalli, stigatöflum og
á Sleikcraft-þjónum þar sem þú hefur tengt persónu.
- Með þjónustuaðilum: þegar það er nauðsynlegt til að reka vefinn (hýsing, auðkenning, þjónustubeiðnir, kort, öryggi/CDN), sbr. 6. kafla.
- Þegar lög krefjast: ef lög eða gild réttarfarsleg krafa kveða á um það.
9. Varðveisla gagna
Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem lýst er hér að ofan:
- Aðgangs- og leikjagögn: á meðan aðgangurinn þinn er virkur eða þar til þú óskar eftir eyðingu.
- Stigafærslur og kaup: geymd á meðan aðgangurinn er til, enda eru þær skráin sem gerir stigastöðu og misnotkunarvarnir sannreynanlegar.
- Erindi og fyrirspurnir: geymd sem þjónustubeiðnir eins lengi og þarf til að afgreiða erindið og fylgja eftir gæðum þjónustunnar.
- Auglýsingabirtingar og viðveru-/dvalargögn: geymd, einkum til samantektar, vegna skýrslugerðar og misnotkunarvarna.
- Tækni- og rekstrarlogg: geymd vegna öryggis, misnotkunarvarna og villuleitar eins lengi og eðlilegt telst.
Þú getur eytt aðgangnum þínum sjálf/ur á prófílsíðunni. Ef þú biður okkur um að eyða aðgangi eða gögnum stefnum við að
því að ljúka því eins fljótt og hægt er — yfirleitt innan 30 daga, nema lengri varðveisla sé lögbundin.
10. Öryggi
Við beitum tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að verja gögn gegn óheimilum aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu.
Innskráning fer fram í sérhæfðu auðkenningarkerfi (Sleik ID), innskráningarkökur eru undirritaðar
og umferð er síuð hjá Cloudflare.
11. Börn
Sleik.is er almennt ætlað notendum 13 ára og eldri. Við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum
um börn yngri en 13 ára. Ef þú telur að barn hafi gefið upp persónuupplýsingar, hafðu samband við [email protected].
12. Réttindi þín
Eftir búsetu og gildandi lögum kannt þú að eiga rétt á að:
- Fá aðgang að persónuupplýsingum þínum
- Leiðrétta rangar eða ófullnægjandi upplýsingar
- Óska eftir eyðingu (með ákveðnum skilyrðum)
- Takmarka eða andmæla vinnslu í tilteknum tilvikum
- Flytja gögn (þar sem við á)
- Afturkalla samþykki hvenær sem er (þar sem vinnsla byggir á samþykki)
Mörgu af þessu getur þú sinnt sjálf/ur: á prófílsíðunni getur þú breytt notandanafni og prófílmynd og eytt aðgangnum.
Að öðru leyti hafðu samband við [email protected].
Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þú telur að brotið hafi verið á réttindum þínum.
13. Kortaupplýsingar og greiðsluöryggi
Við notum Kling (Journey ehf.) sem greiðsluþjónustuaðila. Kortaupplýsingar
þínar eru afgreiddar beint af Kling í samræmi við PCI DSS staðalinn og eru
aldrei geymdar á kerfum sleik.is. Kortanúmer, gildistími og CVC eru slegin
inn á greiðslusíðu Kling og berast aldrei okkar netþjónum.
Við fáum aðeins staðfestingu á því hvort greiðsla hafi tekist, ásamt tilvísun færslunnar
og hlekk á kvittun. Engar kortaupplýsingar eru sendar til okkar.
Vegna pöntunar í vefversluninni geymum við þær upplýsingar sem þarf til að afgreiða hana:
nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer, pöntuðu vörurnar og upphæð. Þessar upplýsingar eru
varðveittar eins lengi og bókhaldslög krefjast og eru hvorki seldar né afhentar öðrum í
markaðsskyni. Spurningar um greiðslur má senda á [email protected].
14. Breytingar á stefnunni
Við kunnum að uppfæra þessa persónuverndarstefnu þegar þjónustan þróast. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar á þessari síðu.
Við hvetjum þig til að kynna þér hana reglulega.
15. Samskipti
Ef þú hefur spurningar um þessa persónuverndarstefnu, hafðu samband: